Þetta var nú meira hléið.
Tónleikar gengu vel, kórarnir stóðu sig vel og ferðin var skemmtileg.
Hraun fékk marga gesti á útgáfutónleikana, það var afskaplega gaman. Eru ekki örugglega allir búnir að kaupa diskinn?
Sveitin var yndisleg þó lítið hafi farið fyrir hvíldinni. 25 Öskjuferðir og 4 Hraun-tónleikar í mismunandi landshlutum.
Svo fórum við auðvitað til Parísar og sáum Tom Waits á tónleikum. Við Þóra fórum meira að segja tvisvar. Eigum við ekki bara að segja að það hafi ekki verið leiðinlegt..!
Sumarið leið sem sagt frekar hratt, og nú er komið haust. Allavega á ég að mæta í skólann í fyrramálið. Þá kemur í ljós hvernig vinnuskipulagið verður í vetur.
Mestar áhyggjur hef ég af Þóru. Það verður erfitt fyrir hana að sinna mér eins vel og í sumar - elda, þvo föt og þrífa - með 200% vinnu... ;-)
Næst: Verkefnin framundan
1 ummæli:
Hjúkks að ég er þó allavega loksins búin að læra að brjóta stuttermabolina þína fallega saman ;)
Skrifa ummæli