- allavega í skólanum.
Síðasta æfing Árnesinganna í kvöld, Stefnir á morgun. Á fimmtudaginn förum við svo öll saman norður og austur, syngjum nokkra tónleika og svo í sumarfrí á sunnudaginn.
Hraun heldur útgáfutónleika á Rúbín á mánudaxkvöldið eftir viku (miðar á midi.is), en fer ekki í sumarfrí heldur spilar víða um land í sumar. Ísafjörður í lok júní, Akureyri 5. júlí og Mývatnssveit 12. júli, svo eitthvað sé nefnt. Platan er á leið til landsins, kemur líklega á fimmtudaginn.
Kærastan á 2 starfsdaga eftir í skólanum sínum - greyið ;-) Hún kemur með í kóraferðina og á tónleikana, svo eigum við nokkra daga saman í borginni áður en við förum í sveitina í sumarvinnurnar okkar. Jebb, tónskáldið kemur með í sveitina og vinnur í óperunni sinni á meðan ég lóðsa túrista um hálendið. Það verður gaman - og öðruvísi...
3 ummæli:
Velkominn í sumarfrí sæti. Það er samt svo gaman á starfsdögum að ég tími ekki að fara í frí ;-)
Hlakka til að koma með þér í sveitina og já, ég tek með mér flugnanet :-p
Já velkominn í sumarfrí:O)
Gæti nú fariðs svo að ég myndi rekast á þig annaðhvort hér á Ísafirði eða fyrir norðan. Er á leið þangað og kem til með að gista í Aðaldalnum hjá Gróu. Bendi líka á aimfestival.is ef þú hefur tök á að hlusta á hana Hrund syngja blús.Svíkur ekki, ég verð þar. Hittumst vonandi, en annars hafðu það gott með henni Þóru þinni.
íbúðin mín er örugglega laus á þeim tíma sem þið eruð í París, hafið samband: parisardaman (hja) gmail.com
Kveðja til ykkar beggja,
Skrifa ummæli