Nú standa yfir foreldraviðtöl í skólanum. Hingað til hefur ein mamma komið inn í stofu til mín, en eðalnemandinn dóttir hennar er að skipta um skóla. Hún var ánægð og þakkaði mér fyrir.
Klukkan 4 útskrifast 10. bekkur. Þá syngur 15 manna kórinn minn. Það verður vonandi fínt.
Svo eru tveir starfsdagar - svo sumarfrí...
Árnesingar og Stefnismenn æfa fyrir austurferð. Ein vika eftir.
Hraun æfir fyrir útgáfutónleika - platan er á leið til landsins. Sjáumst við ekki örugglega?
1 ummæli:
Er platan komin?
Skrifa ummæli