19.9.08

Gleymdi mér aftur

Það er ekki hægt annað en hlekkja á snilldarfærslu Ármanns um okkur letingjana.

Annars eru kórar byrjaðir, sem og skólinn. Kvennó stækkar enn, Stefnir og ÁR þurfa smá blóðgjöf. Ef þig langar að syngja...

Loxins kominn með afleysingakennara. Búinn að taka eitt frí og semja tónlist fyrir eitt stykki DVD á meðan: Jólasveinarnir í Dimmuborgum hafa aldrei hljómað betur.

Fer á Ísó í næsta fríi, sem er núna um mánaðamótin. Verð þar á vegum Guildhall og Listaháskólans, vinn með nemendum á ýmsum stigum og heiti Sigrún.

Í nóvember stjórna ég námskeiði á Eskifirði - nú undir eigin nafni!

Svo er Hraun að spila annað slagið, líklega næst á Rósenberg um Airwaves helgina. Kaupiði diskinn okkar og biðjið um óskalög í úbartinu - plííís...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mér finnst þú hafa allt of lítið að gera Gunnar.... ;)