Asnaðist inn í Skífuna í gær. Komst þar með ekki hjá því að kaupa 4 diska. Allt góðir diskar samt: Eberg - Voff Voff. Fræ - Eyðilegðu þig smá. Pétur Ben - Wine for my Weakness. DJ Shadow - The Outsider.
Reyndar finnst mér DJ Shadow verða poppaðri með hverri plötu, en þetta virkar samt enn. Eberg er auðvitað snillingur og allir sem eru ósammála eru asnar sem kunna ekki að meta góða tónlist. Fræ gera góða hluti, og Pétur Ben veit alveg hvað hann er að gera.
Fyrsta æfing með karlakórnum í gær. Gekk vel, þó ég hafi aðallega verið að hlusta á þá syngja gamalt prógram. Vann aðeins í 2-3 smáatriðum, meira síðar. Góður kór, fann samt nokkur smáatriði sem ég get hjálpað til við að fínpússa og gera hann enn betri. Verð sem sagt ekki bara taktmælir í vetur.
Erfið ákvörðun framundan. Hraun að spila á Stúdentakjallaranum og jojk-hljómsveit á NASA. Ætti auðvitað að sjá jojkið fyrst og kíkja svo á kjallarann á eftir. Kostar samt þúsara inn og byrjar ekki fyrr en tíu, og þá með upphitunarrímum. Ætli ég fari ekki bara á kjallarann...
9 dagar í frumsýningu...
3 ummæli:
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras1/?file=4329212
Fallegast á fóninn 21.9. Fyrsta lag.
Góðar minningar.
Jamm, það var gaman :-)
Eftir rúman mánuð má svo heyra nýja útsetningu lagsins á disknum "Fjöld hann fór."
hæhó, er að kvitta fyrir innlitið..langt síðan ég hef tekið bloggrúnt, kominn tími til...
Við sjáumst svo um jólin ekki satt?:):)
kv.Þorbjörg
Skrifa ummæli