Sjónvarp er tímaþjófur. Maður veit það en áttar sig samt ekki á því fyrr en maður slekkur.
Gott að sitja með bók og hlusta á góða tónlist. Gömul saga og ný, eins og segir í teiknimyndinni, sem er annars afskaplega vel talsett - sérstaklega er kórinn góður...
Nauðsynlegt að hlaða batteríin fyrir næstu törn: Á morgun fæ ég röffmix af komandi geisladiski kórsins míns, og lext í hlustun og uppröðun laga. Helgin fer í það, ásamt mixi fyrir Sjónvarpið og útsetningar fyrir upptökur næstu viku. Svo er fyrsta æfing með nýja kórnum í vikunni og amk 1 fundur fyrir það.
Tók til í íbúðinni í kvöld, kláraði að ganga frá eftir fjarveruna í sumar, henti ruslpósti sem hefur safnast upp í önnum undanfarinna vikna og gerði hana að eilítið betri íverustað. Hlustaði á meðan á The Heliocentric Worlds of Sun Ra II sem ég keypti í London í sumar en hef ekki náð að hlusta almennilega á fyrr en nú. Líklega súrasti Sun Ra diskurinn sem ég á, tæpar 40 mínútur af frjálsum spuna - að minnsta kosti við fyrstu heyrn. Við virka hlustun áttar maður sig hins vegar á því að meiri hlutinn er líklega saminn, góður partur skipulagður spuni og aðeins smá bútar alveg frjálsir. Sun Ra - alls ekki fyrir alla.
Einhver London-stemmning í mér í kvöld, og reyndar síðustu vikur. Brjálað að gera, alls kyns áhugaverðir hlutir í gangi, tónlist og sköpun á fullu, lítill tími til að einbeita sér að einhverju einu, sólarhringurinn í rugli, ekkert samband til að halda manni jarðtengdum, blönduð skilaboð úr mörgum áttum og ýmsir möguleikar opnir, tónlistin þó alltaf efst í huganum... Streatham-stemmning hér heima í kvöld.
Jæja, best að slökkva á tölvunni og skipta um disk.
Þökk sé þeim sem hlýddu.
3 ummæli:
Hæ Gunni minn.
It is:
gislimagna@btinternet.com
Hlakka til!
Kvittekvitt.
Gaman að þú skulir vera með svo mörg járn í eldinum. Heyrði smá bút af tónlistinni fyrir Stundina um daginn :). Mjög skemmtileg!
Bryndís frænka
Haustlýsing á lífi tónlistarmannsins.
Líður nákvæmlega svona......en mikið assgoti er þetta nú skemmtilegt því er ekki hægt að neita.
Skrifa ummæli