Þannig fór um sjóferð þá. Þjóðarsorg? Eða verður þetta allt gleymt í næstu viku? Hvernig verður sumarið hjá Á móti sól?
Fannst reyndar ástæðan sem þeir gáfu sú asnalegasta í seríunni. Þú passar of vel inn í hljómsveitina, vinnur of vel með þeim sem þú spilar með. Fyndið.
Er samt ekki sár (þó þjóðarstoltið hafi gert vart við sig í nokkrar sekúndur), hef enda haldið þeirri skoðun minni óspart á lofti að strákurinn eigi ekki heima í hljómsveit með þessum gaurum, hversu góðir/frægir sem þeir voru einu sinni. Finnst húsbandið miklu betri kostur.
Hlakka til að sofna á skikkanlegum tíma næstu þriðjudaxkvöld.
Karlakór með nýjum kartöflum og smjöri. Gætu orðið nokkrar æfingar, aldrei meira en veturinn, enda kemur fastur stjórnandi kórsins þá úr fæðingarorlofi. 12-14 manna kór, allir nokkuð lærðir og húmorískir með eindæmum, eins og sjá má á nafni kórsins.
2 ummæli:
bíddu bíddu, varstu ekki búinn að snúa þig úr þessum kórklóm með monti og heimtufrekju?
Þetta finnst mér skemmtilegt. Þú passar einhvernveginn svo gersamlega þarna inn og átt eftir að gera góða hluti með þeim.
Gúddlökk:O)
Skrifa ummæli