Var að klára að horfa á Rauðhettu. Langar að horfa strax aftur, en nú á íslensku. Skyldi talsetningin vera nógu góð? Skyldi þýðandanum hafa tekist að staðfæra litlu fullorðins-orðaleikina, eins og þegar Laddi lék andann í Aladdin?
10 kórlög fullmixuð í dag, 14 eftir. Þó er verkið ekki næstum hálfnað, því þetta voru einföldustu lögin, án alls undirleix. Kannski fjórðungur kominn...
Sá Hraun á föstudaxkvöld, vann í miðasölu, hitti fólk, réð hljómsveit í veislu ársins (meira síðar), skemmti mér vel.
Verð svartklæddur á morgun...
4 dagar í frumsýningu - forsýning á morgun!
Lifið heil.
2 ummæli:
Hey, þú ert alltaf svartklæddur.
Man einu sinni eftir þér í rauðum bol, sem reyndar fór þér vel.
Er orðin MJÖG spennt að fá að heyra kórmixið. Kem um helgina suður og hef samband:O)
Hef reyndar ekki farið í svartan bol nema svona þrisvar síðan í vor, og ekki svartar buxur nema jakkafatabuxur. Sérstakt tilefni á morgun :-(
Hringdu endilega, hlakka til. Veit reyndar ekki hvort þú færð endanlegt mix, en eitthvað mix skaltu fá...
Skrifa ummæli