17.5.06

Tónleikarnir

... gengu vel. Kórinn var góður - stundum frábær - og meðleikarar og einsöngvarar líka. Óbósólóið gekk vel í bæði skiptin (Saknaðarljóðið var auðvitað klappað upp og flutt aftur). Stjarna kvöldsins að mínu mati var þó Syngibjörg, en hún hélt uppteknum hætti og grætti fólk um allan salinn með söng sínum. Svo hefur hún tekið kórinn í raddþjálfun síðustu tvö ár og náð yndislegum hljómi úr fólkinu. Takk fyrir það!

Rosalega hlakka ég til upptökunnar á laugardaginn. Hljómsveitin er búin að skila sínu inn og flutningur þeirra gefur lögunum 3 nýja vídd. 60's syrpan verður heildstæðari, FaðirVorið mitt er eins og nýtt lag (ég hlakka mikið til að heyra Jónsa syngja það, enda var það samið að beiðni mömmu hans...) og títtnefnt Saknaðarljóð verður ótrúlega áhrifaríkt. Spennandi...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Maður fer bara hjá sér.......