Ég hef ekkert minnst á Júróvísjón undanfarið. Ég hef samt fylgst með norrænu spekingunum og haft gaman af því. Samt er ég einhvern veginn ekki jafn spenntur og undanfarin ár. Kannski af því að ég mun ekki sjá úrslitakeppnina fyrr en á sunnudag, ég ætla nebbninlega á tónleika með Mama Africa - Miriam Makeba. Dettur ekki í hug að sleppa því. Svo ætla ég reyndar að sjá Angelite - búlgarska kvennakórinn - á sunnudaginn. Góðir tímar framundan.
Góða skemmtun í kvöld, gangið hægt um gleðinnar dyr og passið ykkur á þröskuldinum...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli