16.5.06

Tónleikar og fleira

Fyrst plögg:

Annað kvöld heldur kórinn minn vortónleika sína í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:00 og miðaverð er 1500 krónur. Daxkráin er létt og skemmtileg, slatti af gömlum góðum lögum og nokkur nýrri með. Afi minn spilar á nikku í einu lagi en annars er Bjarni Jónatansson píanóleikarinn okkar. Einsöngvarar eru 3, þar á meðal sjálf Syngibjörg, en hún syngur fyrst dúett með tenórnum og svo hið undurfagra lag Saknaðarljóð Gínu mömmu úr Pílu Pínu. Óhætt er að segja að flutningur hennar hræri hjartastrengi (eins og lesa má hér), en ég er líka nokkuð stoltur af útsetningunni. Í gær bættist svo óbósóló í lagið, og er það þá fullkomnað.

Þá að öðru:

Gærdagurinn var erfiður en afar skemmtilegur. Eftir fullan kennsludag brunaði ég heim, stoppaði í hálftíma en fór svo í Stúdíó Sýrland. Þar hitti ég meðlimi hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, en þeir munu annast meðleik í 3 lögum á komandi geislaplötu kórsins míns, þar á meðal fyrrnefndu Saknaðarljóði. Við hófumst handa við upptökur klukkan 17:00. Rúmlega átta yfirgaf ég þá niðursokkna í vinnu og stímdi í Hafnarfjörð hvar lokaæfing kórsins var nýhafin með upphitun/raddþjálfun nefndrar Syngibjargar. Ég tók við stjórninni uppúr hálf níu og við æfðum linnulaust í tæpa 3 tíma. Þá var stefnan tekin aftur í hljóðverið, en þar voru hljómsveitarmeðlimir enn við upptökur. Klukkan korter yfir 2 kvaddi ég, þá hljómaði bassaleikur við títtnefnt Saknaðarljóð, og var sú upptaka væntanlega síðust á daxkrá þeirrar tarnar. Ansi stífur dagur, en nokkuð liggur á að hljómsveitin ljúki sínu því á laugardaginn mætir kórinn í síðustu upptökur fyrir þennan disk, og þá þarf meðspil að vera tilbúið að mestu.

Ekki tóxt að nota helgina í hvíld og undirbúning fyrir törn vikunnar, því laugardagurinn fór að mestu í æfingadag kórsins og á sunnudag hitti ég afa minn í Fella- og Hólakirkju og við spiluðum inn næstum heilan disk. Diddi fiðla sá um upptökur eins og á fyrri disk okkar langfeðga og auðvitað á kórdisknum sem nú er í vinnslu. Þvílíkur snillingur, þó stundum viti maður ekki alveg hvar maður hefur hann. Frábær tónheyrn og - ólíkt sumum öðrum upptökustjórum - engin feimni við að segja skoðun sína á því sem hljóðrita á. Sumir eiga kannski erfitt með að þola það, en í mínum huga er það ávísun á góða útkomu: hann sleppir engu frá sér sem hann vill ekki leggja nafn sitt við.

Jæja, þetta voru nú meiri langlokurnar. Spurning hvort nokkur hefur komist alla leið hingað. Þeir eiga þá hrós skilið, og fá að launum loforð um fallega og skemmtilega tónleika annað kvöld.

Þökk sé þeim er hlýddu.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er orðin hrikaleg spennt og búin að fara í hargreðslu meiraðsegja.

GEN sagði...

Gaman! Ég fór í klippingu í gær. Maður verður að gera sitt besta...
;-)

Nafnlaus sagði...

Þú verður að senda mér eintak af disknum ykkar þegar hann kemur út! Gangi þér/ykkur vel á tónleikunum :)

Bjarni Ben...

Helvutlen sagði...

Sama segi eg. Eg vil endilega fa ad heyra thennan disk! Leidinlegt ad komast ekki a tonleikana.

Pe Jod