11.5.06

Leikur daxins

"Stilltu iPodinn þinn á Shuffle/Stokk og skrifaðu niður 10 fyrstu lögin."

Ég ætla reyndar að leyfa mér að skrifa niður tvær útgáfur, annars vegar þegar valið er úr allra bestu lögunum (934 lög í augnablikinu) og hins vegar þegar valið er úr öllum 11320.


Topp-listinn:

1. Clapping Music e. Steve Reich. Minimalismi af bestu gerð. 1 rytmi klappaður af tveim einstaklingum. Annað slagið bætir annar þeirra hálfu slagi við og þeir verða því meir og meir ósamtaka. Smám saman nálgast þeir þó aftur og mætast að lokum.

2. Led Zeppelin - The Battle of Evermore. Gamalt uppáhaldslag - á það reyndar líka með The Lovemongers, þá úr myndinni Reality Bites, sem er snilld.

3. Propellerheads - Spy Break (Short One). "Bond"-lagið úr Matrix - þeirri fyrstu auðvitað. Hörku stuðlag.

4. Stevie Wonder - Sir Duke. Lagið með geðveiku brass-línunni. Syng þetta gjarnan hástöfum, þ.e. brass-kaflana en ekki textann sem ég kann ekki, fyrir utan "You can feel it all over, you can feel it over people".

5. David Fanshawe - African Sanctus (upphafskafli). Snilld, blandar saman afrískri Træbal-músík og kaþólsku messuformi. Kórinn hans flutti þetta í fyrravetur, ég söng og barði bumbur. Stuð.

6. Juez - Ocean Child. Dönsk jazzgrúppa (nafnið ku vera blanda af orðunum Jazz og Blues) sem ég kynntist fyrir mörgum árum. Fallegt lag, en ekki það allra besta af disknum.

7. Jet Black Joe - My Time for You. Flott band, allavega í gamla daga. Finnst elsti diskurinn bestur en sá nýjasti sístur. Þetta er af öðrum disknum þeirra, þar er líka að finna lagið "Running out of Time" sem ég spila gjarnan á píanóið.

8. The Streets - Let's Push Things Forward. Fyrsta lagið sem ég heyrði með þessum al-breska rappara. "'Round 'ere we say birds, not bitches." Flott reggae-grúv, passlega ójafnt.

9. Tom Waits - The Part You Throw Away. Eitt af 99 lögum snillingsins á þessum topplista. Af Blood Money.

10. Pink Floyd - The Great Gig in the Sky. Allra, allra besta lag Pink Floyd. Verður pottþétt spilað við jarðarförina mína.

Þessum lista var ekki á nokkurn hátt hagrætt, svona er bara smekkurinn minn. Þó er ekkert þungarokk, enginn sænskur ljóðasöngur og ekkert rapp þarna, það hefði alveg eins getað birst. Nú, eða grænlenskir trommudansar....


Þegar valið var úr öllum lögunum var listinn svona:

1. Pink Floyd - On the Run. Lagið með skrýtnu hljóðunum af Dark Side of the Moon. Virkar með myndbandinu, annars hálf undarlegt.

2. Destiny's Child - So Good. Lag númer tvö af fyrsta disk ofurgrúppunnar. Ekkert sérstakt, Bills Bills Bills var alltaf besta lagið á disknum.

3. Calexico - Low Expectations. Nýfarinn að hlusta á þessa grúppu, fékk þetta hjá litlu systur. Rólegt og hljómfagurt, þó örugglega ekki allra.

4. Prodigy - Break & Enter. Af Music for the Jilted Generation. Þessi diskur minnir mig alltaf á útskriftarferðina til Portúgal, mest þó No Good.

5. Tortoise - The Taut and Tame. Annað lag fengið frá litlu systur, þekki þetta ekki neitt.

6. Scope - Was That All It Was? YES! Svala Björgvins syngur snilldarlag af disknum TransDans 2. Flashback dauðans...

7. Radiohead - The Bends. Þarf að segja eitthvað um þetta? Fór að sjá þá þegar ég var nýfluttur til London, þá var OK Computer nýkomin út. Átti miða á tónleika með þeim, SigurRós, Beck og fleirum sumarið 2001 í Oxford (heimabæ Radiohead) en komst ekki því ég þurfti snögglega að flytja heim. Enn sár yfir því.

8. Eivör Pálsdóttir - Mín móðir. Af færeyska disknum sem ég þekki svo lítið. En þvílík rödd!

9. Háskólakórinn - Helgisaga. Fyrsti hluti af Maríumúsík eftir Leif Þórarinsson. Kórinn hans hefur sungið þetta á síðustu 2 tónleikum.

10. Cornelis Creeswijk - Blues För En Arbetarkvinna Som Hangt Sig. Þarna kom sænski vísnasöngvarinn! Skemmtilegt.


Svona röðuðust lögin á iPodinum mínum í dag.

Lifið heil.

3 ummæli:

Mokki litli sagði...

Bugaboo er mun betra en Bills bills bills.

Nafnlaus sagði...

1 af 1973 Somewhere með Yom Waits
2. Blue Train með GRP All Star Band
3. A l'Ombre de Tes Cils með Claude Challe
4. Song About Earth með Bobo Stensson og fleirum
5. Moonlight með Charlie Haden
6. Hlemmur 1 með Sigur Rós
7. Reunion með Gary Burton o.fl.
8. Dead End úr Hair í nýlegri þýskri útgáfu
9. Human Body með Take 6
11. The Last með Delicia Mini

Helvutlen sagði...

:-( enginn aepod... ekki einu sinni tolvu lengur... get ekki verid med :-(