11.5.06

Gigg

Síðastliðið þriðjudaxkvöld fór ég á söngskemmtun Hugleix. Þar voru rifjuð upp nokkur lög úr leixýningum félaxins, þar á meðal úr þeim 3 sýningum sem ég tók þátt í. Frábær skemmtun, en ansi kitlaði mig mikið í puttana stundum, sérstaklega þegar flutt var fallegasta lagið úr síðustu sýningu sem ég tók þátt í. Ég gat varla handa bundist, var næstum hlaupinn upp á svið til að taka í flygilinn. Eftir sýninguna talaði ég við aðstandendur og fékk leyfi til að spila með í þessu lagi nú í kvöld þegar daxkráin verður endurflutt. Ég er reyndar að stjórna æfingu til 22:00, en það bjargast, lagið er nefnilega svo seint á daxkránni.
Allir eru því kvattir til að mæta á Þjóðleikhúskjallarann í kvöld klukkan 21:00 og taka með sér þúsundkall fyrir aðgangseyri.

Lifið heil.

Engin ummæli: