8.5.06

Sumar pælingar

Ég er afskaplega glaður yfir því að hafa getað farið á bolnum á kóræfingu og skilið leðurjakkann eftir heima. Enn er hægt að vera úti á bolnum og njóta svalans án þess að verða kalt, þ.e.a.s. ef maður er passlega heitfengur yfirleitt - sumir væru væntanlega komnir aftur í úlpuna núna.

Ég er hins vegar ekki jafn glaður með molluna sem myndast í salnum í Nýja Tónlistarskólanum - hvar við æfum á mánudaxkvöldum - þegar sólin hefur skinið þar gegnum glugga allan daginn og ekki blæs inn. Söngfólk þarf nefnilega svo mikið súrefni til að hljóma vel. Eftir svona daga klárast súrefnið yfirleitt í þann mund sem við klárum upphitun og æfingin sjálf hefst. Það segir sig sjálft að svona æfingar eru afskaplega erfiðar.
(Af hverju ætli maður þurfi að klára setningar sem byrja svona? Ætti ekki að vera nóg að segja: "Það segir sig sjálft..."?)

Helgin var annars góð, létt djamm á föstudaxkvöld á Kofanum með litlu systur, rólegheit á laugardaxkvöld. Upptakan sem var á daxkrá snemma á sunnudaxmorgun féll niður svo ég fékk nægan svefn...

Ég fékk bílinn minn á föstudaginn, tók smá stund að venjast Skoda Octavia eftir 3 vikur á Toyota Corolla, en ég kann samt betur við Skodann. Allur einfaldari, minni innrétting, færri hólf og færri hátalarar en miklu betri vél. Glettilega gott að keyra hann þegar maður venst honum.

Minni fólk á að taka miðvikudaxkvöldið 17. maí frá. Skemmtilegir tónleikar klukkan 20:00 í Víðistaðakirkju...

Lifið heil.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

sælir frændi.
Rosalega er ég ánægð með að hafa komist inn á þessa síðu...það var með algjörri heppni að það gerðist:)
En framvegis mun ég fylgjast með afrekum þinum og hafa gaman af....það er nú ekki það mikið samband þessi árin:)
Vonandi sjáumst við í sumar!...
kv. Þorbjörg "stóra" frænka...í sólinni:)

Syngibjörg sagði...

ég fékk "dejavu" við að lesa um molluna í Tónó. Man langa samsöngtíma þar sem Sieglinde sagði, "Jisúss, þa bara ekji hægt vera hjér, og þetta vera á Íslandi"´með miklum tilþrifum.

Nafnlaus sagði...

Djíses hvað bíllinn er flottur! :) kv. Árný