Bjarni: ekki lesa þetta! :-)
Litli (tæplega 12 ára) bróðir minn er snillingur. Hann var í Reykjavík um síðustu helgi, kom reyndar á miðvikudaxkvöld og fór á þriðjudag. Foreldrarnir voru í Barcelona í árshátíðarferð og hann gisti hjá systur okkar.
Á fimmtudaxkvöld tók ég hann með mér á kóræfingu og setti hann í altinn (hann kom sjálfviljugur þegar ég bauð honum). Hann fékk nótur og söng með alla æfinguna - ekkert mál!
Á laugardaginn kom hann (sjálfviljugur) á tónleikana þar sem ég var að syngja og skemmti sér vel, sérstaklega eftir hlé undir Requiem e. Mozart.
Á sunnudaginn fórum við upp í skóla og byrjuðum að taka upp lag sem hann hafði samið, bæði lag og texta á ensku. Tókum upp í svona 3 tíma á sunnudag og aðra 3 tíma á mánudag, svo fór klukkutími í hljóðblöndun. Hann spilaði á trommusett, bassa, rafmagnsgítar, píanó og munnhörpu, svo söng hann lagið og bakraddir! Lagið er flott, mjög flott reyndar, og ég er að reyna að fá hann til að setja það á rokk.is til að deila því með öðrum. Læt vita ef/þegar það text...
Góð helgi í alla staði og gott að kynnast honum betur - ég flutti náttúrulega að heiman þegar hann var pínulítill svo við höfum aldrei kynnst almennilega.
Bjarni: nú máttu lesa.
Takk fyrir frábæra helgi.
1 ummæli:
Rosalega flott lag.. já honum kippir svo sannarlega í kynið.
Skrifa ummæli