18.5.06

Júró í beinni

Holland: Tilbúið tungumál eins og fyrsti bekkur Víkurskóla (og Sanomi Belga). Djembé út um allt svið. Hefði getað verið afar áhugavert, féll í staðinn einhvern veginn um sjálft sig.

Litháen: Smart dressaðir. I get knocked down, but I get up again, you're never gonna keep me down...

Portúgal: Waterloo! Flott skott, og einhvers konar mohawk!

Svíþjóð: Fangad av en stormvind var nú töluvert betra. Túrbó-vindvél. Dálítið brjálæðis-glit í augum Carolu. "Norðurljós..!"

Eistland: "Komið að Eistum sem vilja gyrða sig í brók..." Haha. "Kaupa blátt", ekki "versla blátt"! Skamm Simmi, skamm. Heyri byrjunina á ABBA-laginu sem gítarinn er úr, man bara ekki hvað það heitir. Google segir Does your mother know, og Simmi er sammála.

Bosnía Herzegónía: Smá eþnía (!), ekki alveg nóg fyrir mig. Fallegt lag samt.

Ísland: Haha - Kolaportkona! Búúúúú! Vont mix í upphafi, bakraddirnar allt of háar. Er að reyna að sjá þetta með augum útlendinga. Jiminn eini!

Engin ummæli: