Kýpur: Fín rödd, sérstaklega yfirtónaríki nefhljómurinn a la Anastasia. Lagið náði ekki almennilegum hápunkti, virkar kannski í 4/5 mínútna útgáfu... Fyrsta stigagjafar-samsæriskenningar-athugasemd kvöldsins.
Mónakó: Fínt grúv í millikaflanum, söngurinn skemmtilega lágt í tóninum a la Suðurhöf/Jamaica. Ekkert sérstakt lag samt.
Makedónía: Alltaf gleðst ég yfir góðu slagverxgrúvi. Svolítið svona sumarfrí/útskriftarferð á sólarströnd...
Pólland: Fjölþjóðlegt mix. Gaman að manninum sem sást bak við rapparann í upphafi, hann var hálfhræddur á svipinn. Var söngvarinn ekki með bleikt hár síðast þegar hann var með?
Rússland: Æðaber eins og Jónsi, þó ekki á hálsinum heldur upphandleggjum og öxlum. Hef ég ekki heyrt þetta lag áður? Hey, það kom kona upp úr flyglinum! Vá maður.
Tyrkland: Plús fyrir tyrkneskuna og eþníska millikaflann. Tyrkneskt popp minnir mig alltaf á Yonka Evgemitch (stafað einhvern veginn öðruvísi) sem Gísli Magna (Silvíu-bakrödd) spilaði fyrir mig einhvern tímann í gamla daga. Það var þó töluvert skemmtilegri tónlist en þetta lag. Skrækirnir pirra mann meira og meira í hvert skipti.
Úkraína: Kósakkar og smá eþník. Vond enska, hefði kannski verið skárra á úkraínsku? Og þó, kannski ekki. Snúsnú!
Finnland: Lordi! Ekki þungarokk, ekkert voðalega gott lag, en samt skemmtileg nýbreytni. Fyndið að sjá skrýmsli með hatt í finnsku fánalitunum! Góðir vængir.
Auglýsingar...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli