Armenía: Ég er alltaf svolítið svag fyrir "ethnic" hljóðfærum og skölum í Júró. Þetta er hins vegar ekki skemmtilegt lag, þó millikaflinn sé allt í lagi. Ekki var hann kyrktur í þetta skiptið.
Búlgaría: Af hverju ekki eitthvað þjóðlegra? Eins og búlgarski söngurinn er flottur (ég er einmitt á leið á tónleika á sunnudaginn). Þó alls ekki það versta í keppninni.
Slóvenía: Nei nei. Vindvélin reddaði þessu ekki einu sinni.
Andorra: Plús fyrir eigið tungumál. Annar fyrir dansarana... Annars ekkert frábært, þó kannski skást af því sem komið er.
Hvíta-Rússland: Einræðispopp. Tissepause.
Albanía: Eþnikk og albanska. Jess! Þjóðlegi kaflinn sýnu betri en poppið. (Þetta var samt sekkjarpípa en ekki flauta - skamm Simmi, skamm!)
Belgía: Star Wars og vindvél. Ekki mikið annað í laginu. Undarleg myndataka þarna einu sinni...
Írland: Írskur þjóðlagatónn í röddinni annað slagið, en afar leiðinlegt lag. Tissepause.
Auglýsingar...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli