"Mér finnst að hann mætti nú hneppa frá"!!!
"Tókuð þið eftir því að það var ló í naflanum á honum?"!!!
"Þegar hann [pólski söngvarinn] var með bleikt hár leit hann út eins og frændi Sillu storðu"!
Simmi var nú bara fínn í kvöld. Ég á þó von á að heyra fleiri stigagjafar-samsæriskenningar-athugasemdir þegar ég horfi á upptöku frá úrslitakvöldinu. Annars væri þetta ekki Júróvisjón...
Þið sleppið þó við svona ofurblogg-syrpu þá, því ég verð á tónleikum með Miriam Makeba...
Mér leiðist að við fáum aldrei að sjá skemmtiatriðið. Endirinn var reyndar ekki mjög spennandi, en kannski var það mjög flott alveg fram að því.
Hér eru lögin sem fara beint í úrslitin:
Sviss er leiðinlegt, Moldóvía ekki næstum eins gott og í fyrra, Ísrael með enn eitt væmna friðarlagið, Lettland a cappella (The Magnets eru miklu betri), Noregur er flottur, tómatsósu-Spánn sökkar, Malta er þreytandi, Þýskaland með fóní-kántrí, Danmörk með leiðinlegt tvist, Rúmenía með svona klúbbalag, England perralegt, Grikkland vinnur ekki aftur, Frakkland óvenju þolanlegt og Króatía með rudda-eþník.
Úrslitin: Rússland (10), Makedónía (11), Bosnía Herzegóvína (13), Litháen (14), Finnland (17), Úkraína (18), Írland (21), Svíþjóð (22), Tyrkland (23), Armenía (24).
Ég get nú ekki sagt að fall Íslendinga komi mér mikið á óvart. Maður á aldrei að reyna að þýða brandara sem byggjast upp á orðaleikjum/tungumáli (language-based jokes) eins og þessi setning sannar.
Þetta var undankeppni Júró, þökk sé þeim er hlýddu.
3 ummæli:
Ég tek nú ofan fyrir þér að nenna að hafa skoðanir á þessari keppni og deila því með okkur.
Sat hér reyndar í gær og horfði. Mér fannst þetta allt svo yfirkeyrt að söngurinn hvarf í hávaðann.Pirrar mig alltaf, fannst þetta líka í undankeppninni hér heima.Truflaði það þig ekkert?
Nei, sko, það þýðir ekkert að horfa á þetta til að heyra fallegan söng eða góða tónlist - þetta snýst alls ekki um það! Markmiðin eru allt önnur, og of langt mál að telja þau öll upp hér.
Ég var hins vegar óvenju áhugalítill í ár, yfirleitt er ég búinn að mynda mér skoðun löngu fyrir keppni...
Jahámm... Mér finnst nú Írska lagið nokkuð gott, ég kaus það í gær. Annars fannst mér Litháen og Finnland snilld, gaman að koma með eitthvað öðruvísi :)
Skrifa ummæli