28.2.06

Takk Hafnarfjörður

Námskeiðið gekk mjög vel og tónleikarnir voru æðislegir. Krakkarnir höndluðu erfiðara efni föstudaxins vel þó þeir hafi verið aðeins feimnari en á fimmtudaginn, púslið gekk nokkuð vel og þeir negldu tónleikana algjörlega. Takk fyrir mig Tónó í Hafnarfirði og þær sem mæltu með mér í verkefnið.

Nú stendur yfir Vinavika í skólanum mínum. Mán, þri, fim og fös fara í vinaþemu en morgundagurinn - Öskudagur - verður bara góð og gild Öskudaxskemmtun. Það er, fram að hádegi. Krakkarnir halda áfram að skemmta sér með foreldrunum eftir hádegi en við, vesalings kennararnir, förum á ráðstefnu. Ráðstefnur geta verið skemmtilegar - held ég - en einhvern veginn þarf ég alltaf að fara á ráðstefnur sem koma mér ekki alveg nógu mikið við til að vekja áhuga minn. Svo þarf ég að velja málstofu, en meginþema þeirra allra er læsi(!), að vísu ekki bara á bók heldur líka umhverfi, menningu, upplýsingar og fleira. Nú geri ég mér grein fyrir mikilvægi einstaklingsmiðaðs náms í nútíma kennsluháttum. Mig langar bara ekki að sitja og hlusta á fyrirlestra sem fjalla um málið út frá læsi, stærðfræði osfrv, sérstaklega ekki þegar ég er skyldaður til þess! Ég - þrjóskur? Neeeiii...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég skil þig svo sem að nenna ekki, en mikið er ég fegin að íslensk skólayfirvöld skuli vera farin að spá í svona hluti. Gætu litið styttra en alla leið til Ameríku, t.d. er svona nám í barnaskólunum í Óðinsvéum, skilst mér. Segir Parísardaman sem þarf ekki að mæta á neina fyrirlestra frekar en hún vill.

Nafnlaus sagði...

Takk sjálfur.. þetta var ekkert minna en ÆÐISLEGT hjá ykkur!