Mér finnst gaman að horfa á krullu. Ef ég væri ekki að fara á árshátíð annað kvöld (og reyndar laugardaxkvöld líka) myndi ég fara í skautahöllina og prófa sjálfur að renna steinum og sópa þá áfram.
Annars er ég að halda námskeið í Tónó í Hafnarfirði: 2 tímar í dag, 3 á morgun og svo tónleikar á Degi tónlistarskólanna á laugardag. Vissi ekki við hverju ég mátti búast, fékk engar upplýsingar um skráningu og var við það að hætta við. Fékk hins vegar um 20 frábæra krakka, flesta á miðstigi, klára, virka og til í alls konar vitleysu. Þau áttu ekki í neinum erfiðleikum með verkefnin í dag svo ég verð að vinna með erfiðari hluti á morgun: Sun Ra stef og 8 tóna skali (heiltónn, hálftónn, heiltónn, hálftónn...), jafnvel sönglag líka. Hlakka til :-)
2 ummæli:
frábært, eg hvatti krakkana mína eindregið til að mæta til þín og veit það ætluðu amk 2. Ég er bara með framhaldsstigskrakka. En það er fullt af góðum krökkum þarna, alveg hellingur.
Space is the place, space is the place, space is the place..
..haha, kominn með þetta á heilann ekki satt?
Skrifa ummæli