Ég fór ekki á ráðstefnuna. Sendi annan í minn stað, sá hafði ekki skráð sig en langaði mikið. Var í staðinn á skemmtuninni með nemendum og foreldrum, afhenti verðlaun fyrir söngkeppnina sem fram fór um morguninn og skemmti mér vel.
Í kvöld var haldinn fundur um framhald hljómsveitarinnar sem gekk undir nafninu Bleikar mussur. Hljómsveitin mun koma saman aftur, en tónlistarstefnan er ekki á hreinu og nafnið verður tekið til endurskoðunar (sem betur fer myndu sumir segja).
Ég þarf að kaupa mér miða á Listahátíð í vor. Miriam Makeba 20. maí og Angelite kvöldið eftir. Góð helgi...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli