28.11.05

Kynjabaráttan

Flestir virðast vera á þeirri skoðun að æpod(d) sé karlkyns orð. Ég er reyndar sammála því að mestu leyti. Mér finnst hins vegar stundum betra að segja "æpodið er fullt" en "æpodinn er fullur" - bara stundum, takið eftir.

Hitt er svo annað mál að æpod er voðalega vont orð. Budda, skjóða, glymskratti, sarpur (eða var það sampler?) - öll ganga þessi orð upp, en samt vantar eitthvað...


svp - ég nota iðullega orðið flatbaka í daglegu máli, en tengslarofafetill (eða hvað þetta var) er bara asnalegt :-)
(og hvað er svona dónalegt við síðuna þína - mér er bannað að fara þar inn..?)

1 ummæli:

Mokki litli sagði...

Minn heitir Fagri litli diskógrís, sem er þjált í munni.