28.11.05

Þakka ykkur miklu fremur

Ekki kominn niður á jörðina eftir tónleikana.

Mörg gæsahúðaraugnablik, m.a. byrjunin á Nýjum batteríum með brassbandinu, hápunktar í nokkrum lögum sem féllu annað hvort nákvæmlega að Gullinsniðinu eða áttu sér langa uppbyggingu (sérstaklega í Popplaginu/8), hin fullkomna þögn sem ríkti í salnum í löngu þögnunum í Heysátunni, lúðrasveitin sem marseraði yfir sviðið í Sé lest og svo allt Viðrar vel til loftárása. Öðlaðist gersamlega nýja sýn á hið síðastnefnda - skildi það upp á nýtt - og skalf og nötraði þessar 10-12 mínútur sem það tók í flutningi.

Svíf enn...

Engin ummæli: