Dagur 3. Urrrg!
_____
Ég get ekki gert upp við mig hvort tökuorðið æpod er karlkyns eða hvorugkyns. Yfirleitt hef ég frekar sterkar skoðanir á því sem tengist íslensku máli og málfræði, en þarna sveiflast ég til og frá (sjá síðustu tvær færslur).
Kannski er þetta eins og kókið/kókin: Mig langar í meira kók, eina kók takk. Og þó ekki...
Jólakaffi kórsins um helgina, gott ef það eru ekki líka tónleikar með Sigur Rós á daxkránni.
6 ummæli:
ég tala alltaf um æpoddinn í karlkyni
Já, einhvernveginn finnst mér æpodinn vera kk, en annars alveg hroðalegt tökuorð.Ætti ekki frekar að tala um skjóðu- tónlistarskjóðu?
Við gylfi viljum líka að talað sé um oggu í stað nano. Sjáumst á tónleikum ;)
Nei, hvorugkyns er nú alveg úti finnst mér. Karlkynið vinnur þarna!
Annars finnst mér orðið tónlistarskjóða frekar flott bara, en auðvitað rosalega íslenskt og þess vegna skrítið fyrst... en samt fallegt.
Sko. Auðvitað hef ég æpoddinn í karlkyni. Það liggur í augum uppi. En æpodd er ómögulegt nafn á íslensku og tónlistarskjóða er svona álíka líklegt til vinsælda og flatbaka og tengslisfetill (kúpling).
Mér datt hins vegar í hug, af því hér er verið að safna ýmsu smáu í einn stað: Þetta verður eins konar sjóður af tónlist (þótt eigi að vera hægt að safna einhverju öðru þarna inn). Er ekki mögulegt að kalla þetta buddu? Þá væri budda náttúrulega kvenkyns. Budda er gamalt og gott orð yfir skjóðu, en er bara 2 atkvæði og þannig létt í meðförum. Svo má lengja þetta með því að tala um tónbuddu eða myndbuddu ef fólk vill endilega. Og budda er svolítið hljóðlíkt poddinum líka. Þegar ég hugsa meira um þetta undrast ég að mér skuli hafa dottið svona snilld í hug.
Já, budda eða skjóða, við þurfum að koma þessum hugmyndum til þartilgerðar nýorðanefndar, ekki?
Skrifa ummæli