Ég kom með 15 nýja diska frá Bandaríkjunum, þar af 5 Sun Ra diska. Já, fimm Sun Ra diskar og myndin um hann á DVD... Er rétt byrjaður að hlusta almennilega á þessa diska, líst í augnablikinu best á Lanquidity, enda slatti af frístæl óbóleik þar. Ágætis óbókaflar á Nothing is... og hinum geðveikislega en snilldarlega Cosmic Tones for Mental Therapy/Art Forms of Dimensions Tomorrow; Futuristic Sounds of Sun Ra og Sound of Joy eru góðir en óbólausir.
Merkilegt hvað óbósándið á þessum diskum er svipað tilraunum mínum á iO-árunum, og hafði ég þó aldrei heyrt lag með Sun Ra...
Annars er æpodið fullt og daxkráin líka.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli