13.9.05

Molar

GEN á stundum dálítið erfitt með hávaða. Þó er ekki sama hvernig hávaðinn er: það er lítið mál að láta 20 ungmenni fá slagverxhljóðfæri, skipta þeim í hópa og leyfa þeim að semja tónlist. Hins vegar er hátt tal og hlátrasköll á kennarastofunni dálítið erfitt á eyrun. Frímínútum er því oft eytt inni í tónmenntastofu skólans með tónlist í græjunum - eitthvað róandi, Cradle of Filth eða eitthvað þess háttar...

Síðastliðið laugardaxkvöld náðist meiriháttar áfangi. GEN lauk þá krossgátu í fyrsta skipti einn og óstuddur. (Samræður við frúna hjálpuðu reyndar til við lausnina, enda oft betra að huxa upphátt.) Þetta teldist nú kannski ekki mikill áfangi, nema fyrir það að þetta var ekki bara einhver krossgáta, heldur sunnudaxkrossgáta Tímarits Moggans. Hún er erfið. Reyndar mátti ekki miklu muna, lausnin birtist daginn eftir, en þetta hafðist í tæka tíð.
Baráttan við krossgátu vikunnar er hafin...

Jólasöng er lokið - í bili...

Enn er auglýst eftir körlum í kórinn...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Krossgáta Tímaritsins er algjör killer, en gaman að leysa hana... eða allavega þegar maður getur meirihlutann af henni :). Hef einmitt aldrei getað klárað hana sjálf...vinn í því!

GEN sagði...

Við Tinna frænka hjálpuðumst stundum að í sumar sem leið... Gaman :-)