7.9.05

Kórar

Þessi vika er kóravika.

Á mánudaginn hitti ég kórinn minn á fyrstu æfingu vetrarins. Nokkuð vel mætt, en vantar nýtt fólk í allar raddir eins og áður hefur birst á þessum vettvangi. Býst þó við amk tveim nýjum sóprönum á fimmtudaxæfinguna.

Í gærkvöld söng ég jólalög í rúma þrjá tíma. Ekki þó að gamni mínu, heldur í upptökum kórsins hans. Ekki mín uppáhaldsiðja - jólalög eiga heima í desember, og BARA í desember! Eyddi þó apríl síðastliðnum í þetta, og nú á að klára svo hægt sé að gefa diskinn út fyrir jól. Nokkur lög eftir, þau á að afgreiða á laugardaxmorgun. Ég á reyndar að vera á Grafarvoxdeginum þá, stefnir í að ég þurfi að sjá um atriði skólans míns eina ferðina enn...

Nú rétt áðan lauk síðan fyrstu æfingu nýstofnaðs skólakórs þessa sama skóla. 23 mættu, þar af 3 strákar. Fulltrúar úr öllum árgöngum sem boðnir voru (þ.e. 4.-10. bekk) nema 8. bekk - sjáum til hverjir mæta í næstu viku.

Vetur minn verður sem sagt kórum stráður...



p.s. Varríus er að lesa Biblíuna og skrifar pistla eftir hverja bók. Áhugavert...

Engin ummæli: