31.8.05

Mér líður vel

Ég er kominn á minn rétta stað, byrjaður að kenna tónmennt í stofunni minni í stað umsjónarkennslu á útidögum síðustu viku... Mikið er það nú gott.

Stundataflan er dálítið misjöfn, kenni 4 tíma á mánudögum en 8 á þriðjudögum. Sit svo á fundum til 16:00 báða dagana og reyndar líka á fimmtudögum. Nenni ekki að tjá mig um fundar-Z-hluta síðustu samninga nema bara svona: Ef ég á ekkert erindi á fundinn, af hverju þarf ég að sitja þar?

Annars er dálítið gaman á mánudögum. Þá fer ég á fund í annan skóla. Ég er nebbninlega leiðsagnarkennari... Það þýðir að einu sinni í viku hitti ég strák sem er nýútskrifaður og nýbyrjaður að kenna, leyfi honum að gráta á öxlinni á mér og segi honum að þetta verði allt í lagi. Eða eitthvað svoleiðis...


Af öðrum víxtöðvum (loxins kom x) er það helst að frétta að undirbúningur vetrarstarfs kórsins míns er á fullu, upptaka geisladisx (!) plönuð og helst erfitt að ákveða hvert við eigum að fara fyrir alla peningana..! En það verður ekki fyrr en sumarið 2007 svo ég er alveg rólegur yfir því.

Hér með er hins vegar auglýst eftir söngfólki í allar raddir. Daxkrá vetrarins verður dálítið stíf, 2 æfingar í viku og einn laugardagur í mánuði að auki, en hafa verður í huga að við ætlum okkur að taka upp heilan geisladisk án þess að bæta við aukaæfingum, þ.e. upptökur fara fram á æfingatíma. Næsta vetur slöppum við svo meira af, æfum einu sinni í viku (mánudaxkvöld) og einn fimmtudag í mánuði, höldum risatónleika og förum til útlanda. Þess vegna er leitað eftir fólki til tveggja ára, fólki sem er tilbúið að vinna í vetur fyrir slökuninni næsta vetur...
Áhugasamir geta haft samband í síma, tölvupósti eða með athugasemdum hér á síðunni.

Lifið heil

7 ummæli:

Hildigunnur sagði...

því miður...

er í þremur kórum og einni hljómsveit, á voða erfitt með að bæta við það. Fjölskyldan ossona...

GEN sagði...

Hvað er þetta, lengi má á sig blómum bæta... ;-) Ég skil þig samt alveg...

Nafnlaus sagði...

Ég treysti mér varla til að fjarsyngja í kór :) Get þó ýmislegt.

Mokki litli sagði...

Get ekki í vetur, en má ég koma næsta vetur?
Ég var sópran í menntó. Svo byrjaði ég í háskólakórnum og þar var enginn metnaður fyrir söng whatsoever... "en djammið er sko geðveikt" sagði fólkið. Langflestar sópranirnar voru svona blístursópranir svo ég fékk hausverk... en já. Má ég koma á næsta ári á mánudögum?

Nafnlaus sagði...

Sæll frændi,

datt inn á síðuna þína af annarri... alltaf gaman að því! Er auðvitað búin að hanga síðasta klukkutímann og lesa þig... En nú kíki ég reglulega á þig - set þig í blogghringinn minn.

Bestu kveðjur,

GEN sagði...

SvP: Fjarsöngur er samt skemmtileg hugmynd. Þeir gera þetta stundum á tónleikum í útlöndum, heilu hljómsveitirnar sendar gegnum gerfihnetti...

Mokki: Gaman að heyra frá þér. Auðvitað ertu velkomin í áheyrnarpróf næsta vetur ( þó betra væri að fá þig núna :-). Leitt að heyra með metnaðarleysi háskólakórsins...

Brindís (víst með einföldu!): Gaman að þú skyldir finna mig. Ég væri samt til í að finna þig - akkuru er enginn hlekkur?

Nafnlaus sagði...

Aþþí að ég hef engan síma. Bæti úr því fljótlega, er enn að reyna að peppa mig upp í að byrja á þessu sem allir eru byrjaðir á...

Brindýs frænkz