... að afsaka bloggletina í mér. Stundum blogga ég daglega, stundum ekki.
Fyrsta vinnuvikan í skólanum er að enda. Ég mun bráðlega yfirgefa skólann, fara á einn fund (nánar síðar) og svo í útréttingar. Mig vantar 2 hljómborð fyrir tölvutónlistina, og fullt af nótum fyrir kórinn. Jebb, ég er að stofna skólakór. Sjáum til hvernig það gengur - hann gæti orðið risastór eða bara nokkrar hræður. Geri mér enga grein fyrir áhuganum í skólanum. Ábendingar um nótnabækur/útsetningar fyrir barnakór á byrjunarstigi vel þegnar :-)
Menningarnótt á morgun. Jamm, ekki annað kvöld, heldur á morgun. Skrýtin nótt sem hefst kl.11:00 og lýkur kl. 23:00. Skemmtileg nótt engu að síður.
Sá The Doors Tribute Band á Gauknum í gær. Björgvin Franz var ágætur, en bandið var rosalegt! Þéttir, feitt sánd og vel útsett... Mæli með...
4 ummæli:
Hru!
Hvernig verður þetta með einkanám mitt á slagverk?
Hæ, komin aftur í netsamband. Þessi athugasemd á við eldri færslu um sunnudagskrossgátuna góðu - ég er mikill aðdáandi og á þessum síðustu og verstu tímum hef ég beðið við bréfalúguna á laugardagskvöldum. Vitleysa.
Einkanám á slagverk segirðu. Það er auðvitað sjálfsagt, og hið besta mál, að ég reyni að miðla einhverju til þín. Hins vegar er nú ekki víst hversu regluleg sú kennsla yrði. Þú verður að hafa samband þegar þú kemur í höfuðstaðinn, ég lít svo við tvisvar á ári þegar ég kem norður...
Gott. Segjum það.
Skrifa ummæli