7.8.05

Lyrics to life

Nú fer í hönd síðasta vikan hér í sveitinni. Ég verð að viðurkenna að ég er farinn að hlakka til að koma suður og hefja vetrarstarfið. Hér er lítið um að vera og kvöldin fara oftast í sömu vitleysuna...

Enn er prótúls óvirkt, enn hef ég ekki tekið neitt upp, enn er hausinn yfirfullur af hugmyndum sem þarf að festa niður til að sjá hvort þær virki og mynda pláss fyrir nýjar sem berja að dyrum daglangt...

Í gærkvöld spjallaði ég í nokkra klukkutíma við Nýsjálending sem vinnur hér í sveitinni sem kokkur. Kom þá meðal annars í ljós að "heima" í Ástralíu hefur hann lengi unnið sem umboðsmaður/rótari/hljóðmaður og sett saman hljómsveitir fyrir hina og þessa túra. "The great gig in the sky" var rætt töluvert og hann mælti þessi fleygu orð: "The Great Gig - oh man - the music - and she's singing the lyrics to life!" Ég sagði honum að það eina sem ég hefði skipulagt fyrir jarðarför sjálfs míns væri að þetta lag yrði spilað á fullu blasti - það ákvað ég fyrir einum og hálfum áratug... "True, man, so true..."

1 ummæli:

Tinna sagði...

Já, takk fyrir sumarið, geri ráð fyrir að pöbbaröltsgengið taki eitt slíkt í rvk í vetur. Fordrykkir heima hjá mér á laugó 54 b.