28.7.05

Sendirinn...

... hér á hótelinu er dyntóttur. Stundum virkar hann, stundum ekki. Ég hef nokkrum sinnum sest niður fyrir utan Gamla til að blogga eða skoða póstinn minn, en gefist upp eftir hálftíma pirr.

Héðan er annars það helst að frétta að lítið hefur gerst. Ég skrapp hins vegar suður í vikunni og þar gerðist ýmislegt. Ég hitti náttúrulega frúnna og horfði á Lost með henni, en svo fór ég líka í klippingu, komst að því að djembéið mitt er ekki komið í Tónastöðina og fékk skýringu á því af hverju Pro Tools virkar ekki enn í tölvunni minni. Mér skilst að ég þurfi annað hvort að punga út 10.000 krónum í uppfærslu á forritinu eða setja upp tvöfalt stýrikerfi í tölvunni. Útgáfan sem ég er með virkar sem sagt ekki með Windows XP, bara með eldri og einfaldari kerfum... Vonandi næ ég að kippa þessu í lag um helgina og get byrjað að vinna í 3. hluta dansverxins upp úr því - þeas að taka það upp sem ég hef samið í huganum inni í Öskju og annars staðar síðasta mánuðinn... Þriðji hlutinn heitir Ástardans, sem er einstaklega heppilegt, því ég er enn jafn ástfanginn...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hefði svo sem ekkert á móti því að þú kenndir mér svolítið að berja svona trumbu. Alltaf vakað í mér svolítill trymbill.

ThP sagði...

Jæja Gunnar, fann þig :) skiptist á tenglum við þig hér með... kveðjur af næturvaktinni,
Þuríður