22.7.05

Jökulsá á Fjöllum...

... er í miklum ham í sumar. Minnir á sumarið 2000. Þá át hún sig inn í veg á nokkrum vikum og að lokum fór bíll út í hana...

Nú horfum við á hana koma 10-20 metrum nær dag hvern. Við ákváðum að bíða ekki eftir slysunum í þetta skipti og hringdum í Umhverfisstofnun og Vegagerðina. Fyrir viku komu trukkarnir uppeftir, og 3 dögum seinna var kominn nýr vegur, aðeins lengra í hrauninu, og nýtt vað. Það á reyndar eftir að setjast dálítið betur, er svolítið laust í sér ennþá, en þetta kemur allt.

Þá á bara eftir að koma í ljós hvenær Jökla kemur inn í gamla vaðið. Ég giskaði á 29. júlí, það er föstudaginn eftir viku, svo við sjáum til...

1 ummæli:

Tinna sagði...

Jæja Gunnar, þá hef ég skipst á hlekkjum við þig og bíð eftir að þú gerir það sama svo það geti verið alvöru skipti... eða þú veist :)