Ég þakka allar samúðarkveðjur sem mér hafa borist vegna olnbogabrotsins, og mun nú leitast við að svara þeim spurningum sem hafa borist...
Hvernig?
Ég var í reiptogi með samstúdentum mínum. Vegna axlarinnar ákvað ég að vera aftastur og bregða reipinu um mittið. Liðsfélögum mínum leist ekki á mótherjana (sem voru stórir) og ákváðu því að sleppa eftir ákveðið merki. Mér var ekki sagt frá þessu. Togið byrjaði, þau slepptu, þeir toguðu, ég flaug...
Hversu lengi?
Ég var í gifsi í 8 daga, byrjaði svo að vinna. Reiknað er með að svona brot taki 6-8 vikur að gróa, en ekki er víst að ég nái nokkurn tímann að rétta alveg úr handleggnum.
Leiðsögn?
Jú takk, það gengur vel. Ég losnaði reyndar úr gifsinu daginn áður en ég byrjaði, svo þetta var ekki alveg eins slæmt og það hefði getað verið. Auk þess verður að taka fram að ég er ekki hefðbundinn gæd sem bendir til hægri og vinstri og þylur upp tölur og staðreyndir. Ég sný aftur í bíl og tala við fólkið, þess vegna hefur þetta allt gengið með ágætum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli