14.7.05

Jibbí jei!

Loxins! Ég sit á Gamla Bænum með Víking mér við hlið (enda sýndi mælirinn meira en 20 gráður í dag, og enn er ekki orðið kalt), tengdur þráðlausu neti, hlusta á pistla SvP og blogga. Já, fartölvan mín er komin, fullhlaðin og til í slaginn. Er að velta fyrir mér nöfnum á hana, ýmis nöfn tengd Peter F. Hamilton koma til greina.

Eins og koma tölvunnar valdi mér ekki nægri gleði var svona líka yndislegt veður í sveitinni minni í dag, og á bara að batna á morgun. Þá verð ég reyndar í Öskju, en þar verður hlýtt líka. Maður verður aðeins minna var við sólskinið þar, en brennur töluvert meira...

Enn hef ég ekki minnst á mesta gleðiefnið: Frúin kemur norður annað kvöld og dvelst hjá mér í nokkra daga.

Allt þetta í einu gefur tilefni til fyrirsagnarinnar...


p.s. Hér með hefst aftur reglulegt blogg, kannski ekki daglegt, en reglulegt þó.

Þar til næst...

2 ummæli:

Björk Bjarnadóttir sagði...

Er Jökulsá í ham?

Nafnlaus sagði...

FRRRRRRRRRRR+ABÆRT. Hins vegar er farð að rigna í Kaupmannahöfn svo ég kem heim á fimmtudagskvöld.