8.7.05

Enn einangraður

Fartölvan er ekki komin, kemur kannski um eða uppúr helgi.

Sit á hótelinu, túristar á öxlum mér að bíða eftir tölvunni...

Var annars að uppgötva krossgátuna í tímariti sunnudaxmoggans - snilld! Bresk fyrirmynd en ekki sú danska sem við eigum að venjast, það er samheitavísbendingar eingöngu. Sú breska er töluvert flóknari, ýmist stafarugl, samheiti eða langar vísbendingar, oft allt þetta saman... Skemmtilegt en tímafrekt.

Reglulegt blogg hefst með komu fartölvunnar...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ertu þá orðinn sæmilegur í honum? það er eiginlega miklu mikilvægara en að hafa tölvu. Ómögulegt til lengdar að þurfa að binda hann upp, eins og þegar ég sá þig síðast, kallinn minn.