15.9.05

Heiti

Kórinn hans er að æfa fyrir Myrka músíkdaga, m.a. verk eftir Atla Ingólfs byggt á kvenheitum.
- Fyrir þá sem ekki lásu Snorra-Eddu sér til gamans í æsku eru heiti nokkurs konar samheiti, t.d. er hægt að segja svanni, fljóð, móðir, dóttir, frú eða feima í stað þess að segja kona... Kenningar eru aftur nokkur orð saman, t.d. unda straumur í stað blóðs eða unnar jór í stað skips.
Eníhú, eitt heitanna er Ristill. Kona getur sem sagt verið kölluð ristill: "Komdu hérna ristillinn minn" eða "Nýjasti ristillinn á skrifstofunni er svo sætur..." Skemmtilegt.

Hlýtur þá ekki meðganga konu að kallast ristilbólga?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ristilbólga... hehehe... góur þessi!! :-)