Austurríki. Snilld, tær snilld. Úmpa-hljómsveit með latínó-bíti og jóðli. Hvað getur maður sagt? (1 atkvæði úr mínum síma)
Litháen. Neibb.
Portúgal. Ekki gott.
MOLDAVÍA. Frábært lag, snilldar amma, verðskuldað sæti í úrslitum (2 atkvæði úr mínum síma).
LETTLAND. Klénn dúett, mest hissa á því hversu lítið falskt þetta var hjá þeim.
Mónakó. Fínt lag í gamla júró-stílnum og miklu betur sungið en það
ÍSRAELska. Þetta var samt skárra lag en það mónakóska. Bandaríska framlagið hjálpaði líka til...
Hvíta-Rússland. Nei takk, svona Ruslönu-wannabe virkar ekki, þótt hún rífi af sér fötin.
Holland. Voða sætt, en ekki Júróvísjón. Whitney-taktarnir á tæru samt, "döörím", "þöörú"...
Ísland. Jújú, ágæt frammistaða, (ekki minnst á föt eða dans eða...) en hvar var Regína? Ég sá hana bara alls ekki á sviðinu. Missti ég af því eða var hún bara falin...?
Belgía. "Le grand soir." Ekki hans stóra kvöld samt.
Eistland. Too loud! Gleymdist að syngja fallega. Og hvað var með plötuspilarana?
NOREGUR. Jú, GEN fílar norska framlagið. Ætlaði að kjósa það úr heimasímanum, en nei, Voðafónninn ekki enn búinn að semja við 900-númerin og ekki hægt að hringja! Fúll!
RÚMENÍA. Stomp-senan var heldur fátækleg, alltsvo ritmískt séð. Gaman að sjá slípirokka og steypuskó, en vantaði meira grúv í grúvið - eða þannig...
UNGVERJALAND. Gúllas-dansinn var skemmtilegur, og frúin fílaði hann í botn í endursýningu þegar hún kom heim af æfingum. Ansi var SZILVIA samt nefmælt, sérstaklega var það óþægilegt í byrjun. Svo var bara ein skálm... Uppáhalds tilvitnun í þul kvöldsins: "...ekki er hún Szilvia - ógeðslega ljót..."
Finnland. Why? Why send him? Vont.
MAKEDÓNÍA. !?!?!?! Söngvarinn gerði samt eins og Jónsi, og spilaði á trommur þegar hann nennti ekki að syngja...
Andorra. Pirrandi bakraddasöngkonur, sérstaklega ein.
SVISS. Svalir straumar, og svo var alltaf verið að skipta um tóntegund. Hækkun mjög fljótlega í laginu, en svo lækkað (!) til baka skömmu síðar. Hækkað aftur, og svo aftur... Samtals hækkun í laginu: 3und (úr d-moll í fís-moll). Margföld ánægja fyrir hækkanafíkla eins og mig. Hefði kosið ef Voðafónninn... (sjá Noreg)
KRÓATÍA. Einmanna úlfar... Og trommarinn stóð á höndum. Eitthvað við þetta lag sem virkar...
Búlgaría. Sjá titil færslunnar.
Írland. Æ æ. Kafli í laginu sem er næstum eins og dúrhlutinn í Ríðum sveinar senn... (Hvernig var textinn? Eitthvað Arnarhól, dal og sól, eða var það öfugt?)
Slóvenía. Flott uppbygging í laginu, og það sem vinur minn fyrrnefndur kallar "má ég vera memm?" gítarsóló. Sé eftir þessu lagi.
DANMÖRK. Jújú, nett grúv, skemmtileg rödd, appelsínugulir skór... Skyldi ekki alveg sum múvin í dansinum, en ég er náttúrulega ekkert dansmenntaður og kannski var þetta bara flott...
Pólland. BRINGAN...
Allt í allt gaman að horfa, fúlt að komast ekki áfram (því miður Pez, þú hefur misst af þeim hluta... ;-) en samt skemmtilegt að tuða um klíkuskap og Balkanvísjón og fötin og... - þetta tilheyrir jú allt saman Júróvísjón, ekki satt?
2 ummæli:
Flott yfirlit - lifi Moldavía - á erfitt með að þola norðmennina, en grunar að það sé ég sem er vandamálið en ekki þeir.
Ég hélt algjörlega með Noregi,þeir áttu mitt atkvæði í gærkvöldi!!
Skrifa ummæli