Undankeppnin í kvöld, lítur út fyrir að ég verði einn að horfa. Frúin á stanslausum æfingum fyrir hina og þessa tónleika... Það verður samt allt í lagi, ég á eftir að hlæja, gráta, engjast og lofa stigum fyrir hverja hækkun - alveg sama þótt enginn heyri...
2 hópar í prófi á morgun, svo er það búið. Vona að ég fái að heyra fyrirlestur um Cradle of Filth í fyrramálið, veit að Pantera verður amk kynnt...
p.s. ég var ekki að fiska eftir heimboði í Júró-partý í kvöld ef einhver túlkaði þetta þannig... Takk samt :-)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli