23.5.05

Dúse poa

Allt búið:

Ungverska söngkonan var ekki jafn nefmælt. Enska lagið var afskaplega intens eða þrúgandi, líka þegar pilsið fauk upp Monroe-stæl. Söngkonan frá Möltu stóð róleg ein á sviðinu, engir dansarar eða stórar trommur, bara ótrúlega hreinn og tær söngur - sama hversu kunnuglegt lagið var. Rúmensku trommararnir voru með leiser-kjuða í upphafinu, en grúvið var alveg jafn þunnt, og söngurinn hékk aðeins í versunum. Norski trommarinn var í eitt augnablik ótrúlega líkur öðrum gæjanum í Little Britain þegar sá var trommari og stigavörður í Shooting Stars á 4. Tyrkneska lagið var þunnt, en samt gott (eins og Finninn í spekingaþáttunum sagði, Tyrkir eru alltaf góðir, líka þegar þeir eru vondir). Moldavíska lagið rúlaði, og okkarínan (leirflautan) var kúl. Hvað var málið með albönsku fiðludansarana og trommarann sem lá í gólfinu? Ekki það að lagið var í sjálfu sér fínt. Kýpska sviðsmyndin fór í mig: risaspeglar, dansarar í smekkbuxum, söngvarinn með hanska og svo fékk hann staf sem brotnaði í trommukjuða. Ekki fyrir mig takk. Spænsku tómatsósuþríburarnir voru með flott-hásan gæja í bakrödd. Ísraelska söngkonan var ekki jafnfölsk og í undankeppninni, en bandaríski hluti hennar vakti enn meiri athygli en lagið. Samt var hún með píanó á sviðinu og fær plús fyrir það. Svartfjallaland var kúl í 7/8 en lúftfiðlan gerði ekki jafn mikið fyrir mig og alvörufiðlan í vídeóinu. Danir voru eins og í undankeppninni. Fílaði ekki sænska lagið né átfittið. Makedóninn bætti um betur og sneri trommukjuðanum eftir sólóið sitt. Úkraínar slitu af sér handjárn, það var eiginlega það flottasta við þeirra atriði. Þýska lagið minnti mig á 4NonBlondes í gamla daga, bæði lag og söngur. Hlustið á byrjun söngsins og huxið: 25 years and my life is still, trying to get up that great big hill of hope... Króatíski ljóminn var sæmilegur. Mennski kontrabassinn, þegar söngkonan reif innyflin úr einum liggjandi dansara og strengdi upp og strauk með risaboga - hann fannst mér bestur við gríska lagið. Frúin var með sigur þeirra á hreinu þó henni fyndust önnur lög miklu betri. Rússneski söngurinn var falskur og ekkó-effektinn hjá bakröddunum ekki að virka. ABBA atriðið frá Bosníu-Herz var létt og fyndið, en vindvélin hefði bjargað miklu hefði hún farið fyrr í gang. Svissneska lagið hefði verið enn betra ef á bakkuppinu hefði verið stór kór í bakradda-vó vó- dæminu inn á milli setninga (fattið þið hvað ég meina?), þetta var heldur þunnt svona læf. Lettarnir voru sykursætir, en mikið ósköp varð ég glaður þegar þeir fóru að síga niður á stigatöflunni. Franska lagið - nei takk.

GEN náði tvisvar í gegn fyrir Moldavíu, bæði skiptin úr gemsanum, rétt undir lok atkvæðagreiðslunnar. Símkerfið hrundi og engin tenging náðist lengi vel, hvorki úr landlínu né gemsa. :/

Atriði Úkraínu var flott, trommuveggurinn góður (og grúvið ívið efnismeira en hið rúmenska) og líkamslistamaðurinn afar myndrænn og flottur. Fílaði ekki alveg sirkús-klapp áhorfenda eftir allar erfiðar stellingar, en hey, hverju ræð ég?

Þar með lýkur Júróvísjón-umfjöllun þetta árið, nema ef nemendur eiga gullkorn um keppnina...

Þökk sé þeim er hlýddu...

Engin ummæli: