25.4.05

Júróvísjónlag

Undanfarið hefur orðið Júróvísjón sést í auknum mæli hjá hinum ýmsustu bloggurum, og má þar nefna færslu daxins hjá Varríusi, gamla færslu díselfiðluleikarans og svo gamlar og nýjar pælingar Hr. Pez...

Ég horfði - eins og margir aðrir - á norrænu Júró-nefndina horfa á nokkur Júróvísjónlög í sjónvarpinu á laugardaxkvöld. Mér fannst það gaman. Finninn er fyndinn og húmörinn í norsaranum minnir mig að sumu leyti á Terry Wogan, Júróþul Breta. "Þetta lag er fyrsta pissupása kvöldsins" osfrv.
Daninn pirrar mig af einhverri ástæðu, og mér finnst alveg óþarfi af Svíum að senda sem sinn fulltrúa Barbídúkkuna sem svindlaði sér fram úr Selmu síðast... Hvað ætli hún eigi eftir að segja um íslenska lagið?
Eiki Haux er svo sem allt í lagi, aðallega fyndið að heyra hann tala norsku...

Lögin voru misjöfn, sum hryllileg, önnur komu skemmtilega á óvart. Flottasta lag kvöldsins fannst mér moldóvíska lagið. Víst! Í alvöru! Moldóvía kemur sterk inn í sinni fyrstu keppni. Skemmtileg blanda af gömlu og nýju, eins og reyndar Austurríki líka, en þau jóðla nú í fyrsta skipti í Júróvísjón...

Um íslenska lagið ætla ég ekki að tjá mig hér, ekki strax. Misjafn er mannanna smekkur...


Annars fór ég á Carmina Burana í gær. Fílharmónían, Óli Kjartan, Hallveig, Þorgeir Andréss sem svanurinn, Drengjakór Kársnessskóla, 2 píanó og 6 slagverk. Það var búið að selja miðana okkar, en við komumst inn um leið og kórinn og fengum sæti. Fremst. Inni í tubular-bjöllunum (vantar íslenska nafnið...) með bassatrommu og þríhorn sitt hvorum megin. Tónleikarnir voru góðir, en þetta var óneitanlega merkileg reynsla: Að sitja fremst vinstra megin inni í slagverkinu og reyna að rímixa í huganum miðað við sæti fyrir miðri kirkju. Miðað við rímixið mitt voru tónleikarnir góðir, og sólistarnir hentuðu hlutverkunum einkar vel. Karlparturinn er reyndar ósyngjandi: uppúr og niðrúr öllu valdi, en frændi gerði vel. Tónleikarnir verða endurteknir annað kvöld en ég veit ekki hversu margir miðar eru óseldir...

4 ummæli:

Hildigunnur sagði...

rörklukkur...

Nafnlaus sagði...

Áfram Moldóvía!

Ég rakst á síðuna þína í gegnum síðuna hjá Helgu Kvam.

Bestu kveðjur,
Heiðrún Hámundar

Varríus sagði...

Það er bara eitt fyndnara en að heyra Hr. Haux tala norsku og það er að heyra hann tala íslensku.

Varríus sagði...

... og gaman að finna blogg Helgu Kvam, sem mig minnir að ég hafi leikið með í Jólaævintýri hjá leikfélagi akureyrar 1986 eða eitthvað.

Heimurinn er lítill, Eyjafjörður minni og bloggveröldin minnst.