Gleðilegt sumar.
Vertu til er vorið kallar á þig, og svo framvegis. (Ath. að maður á að leggja hönd á plóg, ekki slóð, blóð eða eitthvað þaðan af verra. Svo sveiflar maður haka, ekki haga.)
Nenni ekki að tjá mig um páfann, flestir aðrir hafa gert það. Læt mér nægja að segja æ æ...
8 dagar í vortónleika, þeir verða léttir og áreynslulitlir, alla vega fyrir áheyrendur.
Nú er huxanlega komin daxetning á Villtan Trylltan: Stefnt er að frumflutningi 7. maí. Þessi daxetning er þó birt með þeim fyrirvara að kannski er ekkert að marka hana... Tónlistin telst þó fullunnin, enda búið að bæta við nokkrum bútum frá upptökudegi hins kórsins, og ég verð að segja að framlag kórmeðlima bætir nýrri vídd við þá upplifun sem Villtan Trylltan á jú vissulega að vera... Staðfesting ellegar breyting daxetningar síðar...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli