Ekki varð nú neitt úr tónleikahaldi föstudaxins, alla vega ekki af minni hálfu. En helgin var góð engu að síður. Árshátíð kórsins var haldin á laugardaxkvöld, það var gaman. Keypti meðal annars listaverk á uppboði, það heitir Kór og er eftir listakonu frá Keflavík. Dorritt keypti eitthvað eftir hana um daginn svo verðgildi verka hennar hlýtur að aukast dag frá degi. Virkar það ekki annars svoleiðis í bransanum?
Sá myndbandið frá skólanum mínum úr spurningakeppninni, það er sniðugt. Systir mín sást þarna alla vega tvisvar, það er bónus. Skilst að þetta hafi verið tekið upp á sömu spólu og innlegg mitt í sömu keppni fyrir (hmmm) 13 árum og framlegg Stubbs litla bróður til Hæfileikakeppni framhaldsskóla fyrir töluvert færri árum. Svo er bara spurning hvernig Stúfur kemur inn á spóluna, enn er pláss...
Sá hjá Pezusi að Huun Huur Tu koma á Listahátíð. Get ekki lýst þeirri hamingju sem greip mig. Rauk til og keypti miða, mæli með þessum tónleikum fyrir alla sem hafa gaman af yfirtónasöng(!) eða bara heimstónlist almennt.
Og að lokum, á nótum efnishyggjunnar:
Ég fæ útborgað í dag, eftir réttum taxta! Jibbí :-)
2 ummæli:
Til hamingju med tad Gunnar.. kominn timi til!
Takk fyrir, jú ég hef beðið ansi lengi eftir því. Svo er bara að fá útborgað afturvirkt, tvö og hálft ár.... gæti tekið ansi langan tíma!
Ertu annars bara glöð í usa?
Skrifa ummæli