25.2.05

Flöskudagur?

Kennsla eftir hádegi á föstudögum er yfirleitt tímaeyðsla. Krakkarnir löngu búnir að missa allt úthald og einbeitingu til að læra eitthvað af viti, sérstaklega í tímum eins og mínum þar sem maður þarf fulla athygli allan tímann. Þetta verður stundum meira eins og pössun: Af hverju að messa yfir þeim, útskýra og segja frá, þegar maður þarf að rifja allt upp í næsta tíma hvort sem er?

Ég gefst samt aldrei upp, nýti tímann eins og ég get, gef enga sénsa, krefst athygli. Verð oft fyrir vonbrigðum.

Ekki í dag. Þrátt fyrir góða veðrið úti (ég sé alla vega bara blátt upp um þakgluggana í stofunni minni) héldu bekkirnir tveir fullri athygli fram á síðustu mínútu hvors tíma fyrir sig. Ég spilaði meira að segja hluta af Kyrie úr Requiem eftir Ligeti fyrir 10-11 ára börnin (þessi kafli var notaður í 2001 - A Space Odyssey, alltaf þegar steindrangurinn (monolith) birtist) og þau hlustuðu, gripu reyndar sum fyrir eyrun í verstu köflunum, en samt...

Annars er spurning hvort ég spila með hálf-mági mínum og vini hans á Grand Rokk í kvöld. Þarf reyndar að finna trommu...

Engin ummæli: