24.2.05

Skautar, Örkin, Getraun og Ekki ennþá

Fór á skauta eftir hádegið með 2 bekkjum og nokkrum kennurum. Rifjaði upp gamla takta, varð mér ekki til skammar. Datt einu sinni, en það var í Stórfiskaleik og ég var á fleygiferð að forðast íþróttakennarann og nokkra aðra...

Spilaði með afa á Örkinni í gærkvöldi, það var gott og gaman. Óbóan og nikkan virka alltaf vel saman.

Hlustaði á Gettu Betur í útvarpinu á leiðinni þangað og fann gamla skólastoltið gera vart við sig, alveg þangað til í lokin að spurt var um hljóðfæri og dýr. Hljóðfærið þróaðist í Frakklandi á 17. öld og nafn þess í mörgum tungumálum er dregið af franska nafninu, sem þýðir "hátt tré". Bla, bla, bla, ekki algengt, bla, bla, bla, erfitt að mynda fallegan tón, bla, bla, bla, lék hlutverk ákveðins dýrs í Pétri og úlfinum. Nefnið hljóðfærið og dýrið. Þetta tókst þeim ekki, þótt ég vissi svarið eftir fyrstu setningu - lesendur mega auðvitað spreyta sig, en það skal tekið fram að engin verðlaun eru í boði..!

Annars er það að frétta af skólastoltinu að nú skal það dregið fram og rykhreinsað fyrir vorið ásamt húfunni og gylltu uglunni, enda mikil hátíð framundan: 10 ára stúdentsafmæli mitt og útskrift litlu systur næstum samdægurs, eða bara nokkrum tímum seinna. Við getum síðan júbílerað saman í framtíðinni, hún verður 5 þegar ég verð 15 og svo framvegis. Verst þykir mér að hafa ekkert heyrt af skipulagningu hátíðarinnar enn, og bara tæpir 4 mánuðir til stefnu. Hvar á hittast, hvenær, og hver sér um skemmtiatriðið? Sjálfsagt væri Ekki ennþá til í að sjá um þetta, en maður þarf auðvitað tíma til að æfa ekki og sleppa því að undirbúa sig...

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Akkúrat - sat gargandi við sjónvarpið - "Hálvitar!"
að vísu náði MA dýrinu úr Pétri og úlfinum, en hver veit ekki á hvaða hljóðfæri þau eru spiluð! BTW - við eigum fyrrgreint verk á CD, ansi gott eintak ef þú vilt
Árný

GEN sagði...

Takk, en þetta var í pakkanum sem ég keypti fyrir skólann: Sinfóníuhljómsveit Melbourne og Örn Árnason flytja Pétur og úlfinn, Babar eftir Poulenc og Hljómsveitin kynnir sig eftir Britten :-)

Helvutlen sagði...

Ég er samt með bestu upptöku af Pétri og Ulfinum... Sean Connery kynnir.
Og varðandi útskriftarafmæli... það var þannig hjá mér að mér var ekki boðið í mitt. Það var sent út blað sem vinur minn fékk með nöfnin á þeim sem skólinn gat ekki fundið. Ég var ekki á listanum, en fékk samt ekki boð...

Nafnlaus sagði...

Sean Connery - oh wow! Hann er ÆÐI!Árný

Bergþóra sagði...

Hvernig fannst þér myndbandið? Hresst ha.. :)

GEN sagði...

Sá ekki myndbandið, var að keyra manstu... Reyni að grafa þetta upp á netinu, er ekki allt svona geymt..?

Og jú PJ, Sean Connery er vissulega flottur.

Bergþóra sagði...

Jú þú getur fundið þetta á ruv.is.
Myndbandið var tekið upp á spóluna góðu fyrir aftan Gunnar og stúlknakvartettinn (?) og Jón Árna í Chicago.. ennþá pláss aftast á spólunni fyrir Bjarna (hef reyndar sterklega á tilfinningunni að hann verði frekar í liðinu en skemmtiatriðinu).

GEN sagði...

Þú meinar GB og buxnastrengina? Jamm, kíki á þetta :-)