7.3.05

2 dagar...

Mánudagur og ekkert mikið gerst síðan síðast.

Tókum upp messu Úlfars á laugardaginn, eða alla vega helminginn af henni.

Eyddi rúmlega 4 tímum sunnudaxins í upptökur fyrir "Villtan Trylltan", og ekki búinn enn.

Hrellti nemendur með skyndiprófum og söng Fönn, fönn, fönn, oftar en mig langar að huxa um - og ekki laus enn. (Yngri bekkir eru að fara að sjá Sinfó, og þetta er lagið sem allir eiga að syngja saman.)

Meðfram öllu þessu höfum við skötuhjúin verið að rifja upp fyrri afrek Eddie Izzard og horfa á þá mynddiska sem hafa verið gefnir út með honum að vera fyndinn. NB ekki bíómyndirnar sem hann hefur leikið í, enda þær sjaldnast vel heppnaðar, heldur Definite Article, Glorious og Dress to Kill.
Þetta gerum við af ásettu ráði, enda bara 2 dagar í að við sjáum kappann á Broadway. MÉR HLAKKAR ÓGISLEGA TIL (!)

Engin ummæli: