10.3.05

Gleði - og tuð

Jæja já. Ýmislegt að skrifa um.

Fyrst er það auðvitað aðalmálið: Izzardinn í gærkveldi. Góður. Mjög góður. Slatti af kunnuglegu efni, en þróuðu og betrumbættu. Gott nýtt efni inn á milli. Skegg í stað farða, jakki í stað pilss (!), en samt Izzard. Sá sjálfur um að kynna upphitarana, þó bara með míkrafóni baksviðs. Það var sniðugt. Vildi að ég væri að fara aftur í kvöld.
Ég varð hálf hissa á upphiturunum. Hef ekki fílað Þorstein hingað til, en hann kom mér á óvart. Nokkuð skemmtilegur bara. Pétur hlakkaði ég hins vegar til að sjá, en missti allt álit á honum. Leiðinlegur og dónalegur, án þess að vera fyndinn.

Sá Ghostigital í Mósaík á þriðjudaxkvöld. Hmmmmm. Nú hef ég yfirleitt gaman af tilraunastarfssemi, stunda hana reyndar sjálfur á stundum. En þetta fannst mér leiðinlegt lag. Sniðugar hugmyndir, frumleg útfærsla, góð blanda hljóðgjafa, gaman að sjá fyrrum nemanda minn framleiða óhljóð á kornettinn - en þrátt fyrir allt þetta var útkoman: Leiðinlegt lag.
Þýðir þetta að ég sé ekki kúl?

1 ummæli:

Hildigunnur sagði...

neibbs

ghostigital er ekki kúl fyrir fimmeyring. Bara leiðinlegt.