8.3.07

Tíminn líður

og smám saman kemur þörfin yfir mann aftur, þörfin fyrir að skrifa eitthvað og birta einhvers staðar. Verst hvað lítið er af manni að frétta. Reyndar átti kórinn minn stórafmæli og hélt stórtónleika í Íslensku óperunni með þrem gestakórum. Vinir mínir eru hálfvitar og spila annað slagið á tónleikum, það er gaman. Svo er ég farinn að umgangast leikarapakk (reglulegi fimm ára skammturinn) og gera með því tónlist. Svo vann ég í Hafnarfjarðartónó og FÍH inn á milli veikinda og visitasíu frá Lundúnum. En annars er ekkert að gerast...

3 ummæli:

Syngibjörg sagði...

......lífið er sem sagt saltfiskur??

Nafnlaus sagði...

Nei, þú ert hálfviti...

Bergþóra sagði...

Thad er leidinlegt ad fretta ad idjuleysid hafi nad tokum a ther, alveg hreint til skammar hvad thu getur verid latur og oproduktivur.