Svaf samtals 12 tíma um helgina (frá föstudegi til mánudaxmorguns). Eyddi 24 tímum í upptökur og 7 tímum í leikæfingar. Fór líka á tvenna tónleika og skemmti mér vel. Góð nýting.
Svona er lífið þegar maður tekur þátt í leiksýningu með áhugamannaleikfélaginu Hugleik, sérstaklega ef maður er hljómsveitarstjóri. Verkið heitir Epli og eikur og verður frumsýnt föstudaginn 23. mars. Mætið!
Sé ekki fram á mikið meiri svefn þessa helgi, enda bara vika í frumsýningu.
Kominn í ansi hreint sérstakan kvartett - veit ekkert hvað verður úr því. Meira síðar - eða ekki...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli