4.10.06

Stundargaman

Nú eru foreldraviðtöl í skólanum mínum. Þar sem ég hef ekki umsjón með neinum nemendum eru engin viðtöl bókuð hjá mér. Hins vegar er öllum foreldrum frjálst að líta við og spjalla. Í fyrra komu 4, veturinn þar áður 3. Nú klukkan 10:30 hefur einn pabbi litið inn - ekki til að ræða neitt, bara af því að barnið er í fyrsta bekk og hann fékk túr um skólann. Gaman.

Í kvöld lýkur hljóðblöndun kórdisxins (7, 9, 13).

Þættinum hefur borist bréf:
"Hvar gætti þinna áhrifa? Ég varð ekki vör við þau svona umiddelbart. Missti að vísu af fyrri helming..."

Auðvelt er svara þessu. Upphafs- og lokastef þáttarins er eftir einn félaga hljómsveitarinnar en útsett af okkur öllum. Öll millistef eru útsett af hljómsveitinni og í þeim öllum heyrist í minni stórskemmtilegu udu-trommu (sjá/heyr t.d. hér, hér og hér). Einnig má heyra mig syngja og leika á harmóníum, englahorn og alls kyns slagverk.
Að auki má geta þess að þegar Stígur og Snæfríður eða gestir þeirra syngja (eins og t.d. í næsta þætti) sér hljómsveitin um útsetningar og undirleik, og hef ég þá töluvert meira að gera.
Að síðustu skal nefna að þótt ég eigi engan hlut í laginu um Hjálpfúsan finnst mér það flott...

1 ummæli:

Syngibjörg sagði...

Hér var mikið hlegið í dag milli 6 og hálf 7. Við börnin skemmtum okkur konunglega og tónlistin er æði flott.Ætla að fylgjast með í vetur, en á ekki að gefa tónlistina út á geisladisk? Finnst alltaf athyglisvert þegar samin er góð tónlist fyrir börn. Allt of lítið til af því og því vert að koma þessu á framfæri í sölulegu formi. Myndi sko kaupa.Alveg fullt.